26/03/04
Jei gaman......
Það er komin helgi og það er mjög svo gaman. Það verður lítið gert um þessa helgi en móðir mín og bróðir minn eiga afmæli þessa helgi. Þau eru náttúrulega í skýjunum með það. Ég var að horfa á skrítnar en samt ógeðslegar teiknimyndir sem heita Happy Tree Friends, um einhver dýr sem drepast í hverjum þætti. Frekar ógeðslegt þar sem maður heldur að þessir þættir séu saklausir barnaþættir.

23/03/04
Ég ákvað að taka aðeins til í linkunum því helmingurinn er alveg hættur að blogga. Þetta fólk sem er hætt að blogga það á að skammast sín. Þetta kemur reyndar úr hörðustu átt þar sem ég er sjálfur latur við að blogga.
22/03/04
Bróðir minn fékk afmælisgjöf um daginn þar sem honum var gefinn Dvd diskur með He-Man. He-Man er bara snilld og verður alltaf snilld. Ég horfði á diskinn og fékk hroll, þetta minnti mig á gamla tíma þegar maður var lítill að horfa á He-Man. Það voru skemmtilegir tímar. Núna eru komnir nýir He-Man þættir og fjalla þeir um það sem gerðist á undan þeim gömlu, hvernig He-Man varð He-Man og svoleiðis.
19/03/04
14/03/04
Alltof mikið búið að gerast.
Það er alltof mikið búið að gerast til að fara að blogga um það og ég er ekki búinn að hafa neinn tíma til að blogga. Það sem er búið að gerast er árshátíð FB sem var eitt skrítnasta ball sem ég hef verið á eða var ekki á. Maður var á sínu hótelherbergi og fór á ball og aftur á hótelherbergi og ball ég held að ég hafi heyrt eitt heilt lag. Fáránlegt..............

24/02/04
Út úr kortinu........
Já maður er alveg búinn að vera út úr kortinu með þetta blogg mitt hérna. Ég tók ekkert eftir því að liðnir væru 10 dagar frá síðasta bloggi. Ég ætla að spyrja ykkur: Afhverju lýður tíminn svona hratt??? Endilega svariði ef þið nennið.

15/02/04
Helgin liðin.
Já skemmtilegri helgi er lokið og skóladagur í nánd. Það verður hinsvegar ekkert gaman í skólanum því maður þarf að hlusta á einhverjar sögur um Akureyrarferð krakkana. Keppti í dag með Tindastól og töpuðum við með 2 marka mun gegn Þór á Akureyri. Þessi leikur var skandall og núna er ég með gríðarlegan verk í bakinu. Úgabúgabúga!!!
Þetta er fónn sem ég ætla fá mér þegar ég er orðinn ríkur. Hann er rúmlega 2 metrar á hæð og 26 kíló á þyngd og kostar aðeins 3 millur. KONTRABASSASAXÓFÓNN.